*AVOCADOZ - Halla, Brynja, Katrín

07.02.2008 17:03:50 / avocadoz

Hver kannast ekki við þetta?

Draugadrjóli: Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í klóinu þegarþú kíkir.

Hreinn skítur: Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er ekkert áskeinipappírnum.

Eltikúkur: Þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um þigog fattar að þú þarft að kúka meira.

 

Sprengja-æð-í-enninu hnulli: Sá sem þú þarft að hafa svo mikið fyrir að komafrá þér að þú færð næstum slag

Dauðadrumbur: Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að bútahann í sundur með blýanti.

Loftpressukúkur: Kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa.

Þynnkuskita: Kemur eftir fyllerí. Helsta einkenni hans eru bremsuförin ískálinni.

Maískúkur: Skýrir sig sjálfur.

 Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur: Þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar.

Mænustunguskítur: Þessi er svo æðislega sársaukafullur að þú ert vissum að hann er á leiðinni út þversum.

Rasskinnableytuþrumari (Orkuþrumari): Fer út á svo miklum hraða aðafturendinn á þér rennbleytist af klósettvatni.

Fljótandi drulla: Gulbrúnn vökvi frussast út um alla skál og jafnvel útá rasskinnar í leiðinni . Hér kæmi þvottapoki sér betur en skeinipappír.

 Háklassakúkur: Kúkur sem lyktar ekki.

Óvæntur kúkur: Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftirbara að prumpa en... úps, sparð. (þessa gerð vil ég kalla "frúk (þú ætlar aðFReta en það kemur óvart kÚKur)

Slórskítur: Kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér þó þú sért búin aðkúka fyrr en þú hristir þig vel.

Atómsprengja: Þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður enn í margaklukkutíma á eftir.

Skopparakúkur: Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um alla skálina(kosturinn er að þarf lítið að skeina)

Mikilmennskukúkur: þú rembist og rembist og svo kemur eitt pínulítiðlambasparð.

Íþróttaálfurinn: kemur ca. klukkutíma eftir leikfimina.

Klippikúkur: sem er svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka -klippa...

Góðar hægðir .... nei stundir ...


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 20:26:29 / Katrín:)

jæja

Ætlaði bara að láta vita að við erum á lífi en mjög uppteknar við vinnu, skóla og ekki neitt;) hef eiginlega ekki tíma í að blogga eitthvað mikið núna er að fara út en fann eitt sem mér finnst svo sætt og satt, endilega lesið þetta ykkur á eftir að líða vel eftir á! :D

© Allavega 5 manneskjur í þessum heimi elska þig svo mikið að þær myndu deyja fyrir þig.

© Minnsta lagi 15 manneskjur sem elska þig á einhvern veg.

© Eina ástæðan að eitthver hatar þig er afþví hann vill vera eins og þú.

© Eitt bros frá þér getur toppað daginn fyrir einhverjum jafnvel þótt honum líki ekki mjög vel við þig.

© Allar nætur er EINHVER sem hugsar um þig áður en hann fer að sofa.

© Þú merkir heiminum eitthvað.

© Án þín er eitthver sem vill ekki lifa.

© Þú ert sérstök/takur og góð/ur á þinn hátt.

© Eitthver meira að segja eitthver sem þú tekur ekki eftir elskar þig.

© Þegar þú gerir mestu mistök lífs þíns þá blessast það fyrr eða síðar.

© Þegar þér finnst eins og allur heimurinn snýr við þer baki er það kannski bara einn eða tveir.

© Þegar þú hugsar að þú getur ekki fengið það sem þú veist að þú eigir ekki séns í, gæti það alveg gerst að þú fáir það einn daginn ef þú hugsar rétt og bíður.

© Brostu allavega 30% af deginum.

© Segðu alltaf frá því þegar þér líður illa.

© Ef þú átt frábæran vin, taktu þer þá tíma og sýndu honum að þú getur verið frábær líka.

© Kannski verðum við að hitta ranga fólkið áður en við hittum rétta fólkið, svo að við kunnum að vera þakklát þegar við hittum loksins þann sem hentar okkur.

© Kannski opnast dyr hamingjunnar á einum stað um leið og þær lokast á öðrum, en oft störum við svo lengi á lokuðu dyrnar að við sjáum ekki hinar sem hafa opnast.

© Kannski er bestu vinurinn sá sem þú getur rólað þér með á veröndinni án þess að segja orð og síðan gengið í burtu og liðið eins og þú hafir átt eitt besta samtal ævi þinnar.

© Kannski er satt að við vitum ekki hvað við höfum átt þangað til að við missum það, en það er líka satt að við vitum oft ekki hvers við höfum saknað fyrr en við öðlumst það.

© Það eitt að gefa einhverjum alla okkar ást tryggir ekki að viðkomandi elski okkur á móti. Ekki búast við ást í skiptum fyrir ást; bíddu þangað til ástin vex í hjörtum annarra og ef það gerist ekki, skaltu þakka fyrir að ástin hafi vaxið og dafnað í þínu hjarta.

© Kannski tekur það einungis mínútu að brjóta einhvern niður, klukkutíma að láta sér líka við einhvern og einn dag að verða ástfangin af einhverjum, en það getur tekið lífstíð að gleyma einhverjum.

© Kannski ættir þú að reyna að ná í einhvern sem fær þig til að brosa, vegna þess að eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt.

© Ekki fara eftir útliti, það getur blekkt. Ekki fara eftir auðævum, þau geta horfið.


     © Finndu einhvern sem fær hjarta þitt til að brosa. Þegar  þú fæddist varstu grátandi og allir í kringum þig voru brosandi. Lifðu þannig að þegar þú deyrð verðir þú brosandi og allir í kringum þig grátandi

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 02:41:32 / Brynja:)

Hó hó hó..

Gleðileg jól elskurnar!

Hafið það gott og borðið yfir ykkur um jólin.. haha ;)

Avocadozzzz....:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 00:07:27 / Brynja:)

LONDON BABY!!!!

Já góðir hálsar við pjöllurnar erum komnar til London!!

Við erum að tala um það að við þurftum að borga 20 þúsund krónur í yfirvikt  á flugvellinum, takk fyrir !! Já það mátti sko bara fara með tvær töskur og 40 kíló fyrir okkur báðar en við vorum með 6 töskur og rúm 80 kíló plús veskin okkar!!!

Ferðin gekk svona upp og niður.. Drösluðumst með allt helvítis draslið og töskurnar 6 niðrá hótel í London og checkuðum inn! Þá var ekki búið að borga herbergið sem við vorum búnar að leggja inná Visa hjá pabba. Pabbi og Mamma eru í Florida og ég þurfti að hringja þangað og láta pabba leggja inná mig..
Þá fattaði Tinna að passinn hennar var týndur og hún hefði misst hann í leigubílnum og við að fara aftur heim eftir 3 daga !!:S
Svo fengum við frest að borga herbergið og þurftum að drösla öllum þessum 80 kílóum upp 3 hæðir í pííínulitlum stigum sem eru alveg að hrynja! SHIT ég dó næstum því sko..

Seinna um kvöldið kom þessi æðislegi leigubílsstjóri með passann hennar Tinnu, pabbi lagði inná mig og við gátum borgað herbergið og við tókum gleði okkar á ný er við fundum SUBWAY á oxford!!

JÁ stelpur við erum sko við hliðiná oxford, erum 2 min að labba og það er svooooo flott þarna!! Mikið mikið jólaskraut og svo flottar búðir! Erfitt að eiga ekki mikinn pening og nákvæmlega EKKERT pláss eftir í töskunum!!:D hahaha...

Fundum O.C. seríu 4 á Oxford og fórum heim að glápa, sváfum lengi sökum 3 tíma svefn síðustu 2 sólarhringa og vöknuðum og fórum aftur á Oxford!:D

Svo var bara farið í búðina og blætt í fullt af áfengi og erum búnar að gera okkur til núna og erum að fara á djammið!! Vúhú! Kristín er búin að ráðleggja okkur að fara á stað sem heitir Fabric og er eitthvað svaka ! 4 hæðum undir undergroundinu og komast 2000 manns.. Sjáum til hvað verður úr kvöldinu;)

Bara smá fréttir..! Sjáumst á Mánudaginn allir !! ;););)

Brynja Sif ;)

Við kellingar á síðasta djamminu okkar í Malaga, á síðasta miðvikudag;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 23:03:57 / Katrín:)

jól jól jól :D

Jæja stelpu skjátur og aðrir sem lesa þetta blogg:)
 

Hvernig hafið þið það?:) Ég var að spá í að breyta útaf vananum og koma með eitt blogg svo að Brynja standi ekki ein í þessari síðu. Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja .. Ætli ég segji ekki bara frá helginni.

Föstudagur: Þá var ég bara að vinna til 4, vá seinustu dagar renna einhvernvegin í eitt hjá mér. En ég man samt að ég fór til Írisar eftir vinnu í heimsókn og hitti þá tvo litla stráka sem eg hef ekki séð lengi sem eru Damon og Lennon litlu sætur hundarnir hennar:) Við horfðum á dvd mynd eða næstum heila mynd en þurftum að stoppa það af því að Íris þurfti að ná í mömmu sína og systkyni út á flugvöll, þau voru að koma í bæinn um helgina þannig að ég fór bara heim þá og lá uppí sófa þangað til að ég sofnaði eins og gerist oft (alltaf) á kvöldin þegar ég byrja að horfa á sjónvarpið hehe;)

Laugardagur: Var vöknuð mjög snemma og ákvað að kíkja í bæinn með mömmu því hún átti eftir að versla einhverjar jólagjafir. Fórum í nokkrar búðir í skeifunni og þar í einni búð sem heitir friendtex fann ég part að jólagjöfinni minni frá mömmu. Ég fann loksins kápu, er búin að vera að leita í nokkra mánuði eftir einhverjum fínum jakka eða kápu til að geta verið í ef ég er að fara eitthvað fínt og fann það loksins;) Svo kíktum við í kringluna og versluðum eitthvað þar þó aðallega á sjálfar okkur hehe, en svo þurftum við að drýfa okkur heim því við áttum eftir að fara í sturtu og gera okkur til því við vorum að fara í matarboð:) Í matarboðinu borðaði ég illa yfir mig enda sjúkt góður matur þar, en ég þurfti að drýfa mig þaðan og uppí xd sal þar sem vinnan mín var með jólahlaðborð og djamm. Ég átti erfitt með að hella bjór ofaní mig því að lítið var plássið útaf öllum matnum en auðvitað tókst það á endanum og ég skemmti mér heiftarlega vel! Það voru teknar fullt af myndum og ég skal setja þær hér inn eða á myspace síðuna mína þegar ég fæ myndirnar;) En kvöldið leið svo hratt að þegar klukkan var orðin 4 fattaði ég að ég ætti eftir að fara í bæinn en nennti því ekki fyrst að klukkan var orðin svona mikið að ég fór bara heim að sofa;)

Sunnudagur: Í dag vaknaði ég einhverntíman eftir hádegi og var að deyja ég var svo svöng hehe, enda það besta sem ég geri eftir djamm er að éta :D  en svo ákvað ég að skella mér enn og aftur í bæinn með mömmu gömlu og var það mjög óspennandi bæjarferð! kíktum í nýja hagkaup í holtagarði og shit hvað þetta er stórt!!  eftir það fór ég og heimsótti Kristínu í vinnuna og fékk mér sígó með henni en þurfti svo að drýfa mig heim í sturtu því ég var að fara á tónleika!  ég pakkaði samt inn öllum jólagjöfunum áður en ég fór í sturtuna;) ég var semsagt að koma heim af jólatónleikunum með Björgvin halldórssyni. Þetta voru mjög flottir tónleikar og ég er ekki frá því að maður sé komin í smá jólaskap eftir öll þessu jólalög;)


En núna styttist í það að Brynja og Tinna komi heim frá Spáni reynslunni ríkar! Ég verð alltaf mjög abbó þegar ég les bloggin þeirra og sé hvað þær eru að skemmta sér vel þarna úti í hitanum á meðan við húkum hérna í snjónum, forstinu og kuldanum!! :@  En ég fer nú að fara út sjálf! jebb ég verð úti um jól og áramót;) Fer semsagt eftir tæpar tvær vikur, 21.des til Tenerife og verð í sól og hita um jólin:) ég á pott þétt eftir að sakna þess samt að vera hérna um jólin og áramótin..missi af öllum jólaboðunum og sprengjunum á gamlárs en það verðu samt fínt að pófa þetta;)

En núna taka við tvær óspennandi vikur hjá mér áður en ég fer út! vinna alla daga + að ég fer í heila- og mænu segulómun á mánudaginn 17.des :/

En ég hef ekki frá neinu að segja í viðbót svo að ég ætla að láta þetta gott heita í bili, læt ykkur vita þegar myndirnar verða komnar á netið frá gærkvöldinu..

-Katrín

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 22:48:37 / Brynja:)

Bara 2 vikur eftir !

Já það er aldeilis hvað tíminn hérna líður hratt! Bara 10 dagar í london og 13 dagar þangað til við komum heim á klakann!

Ég ætla bara að byrja á því að segja ykkur fréttir frá þýsku beyglunni! Hún var búin að vera með svona smábögg einsog alltaf.. kvartandi yfir einhverju sem skipti nkl ENGU máli og svona.. Svo einn Laugardaginn þá fórum við á djammið og þá vorum við sko ekkert búnar að djamma í viku ! Vorum úti á svölumeinsog vanalega að drekka og hlusta á lága tónlist og svona.. Svo allt í einu kemur hún út á svalir .. GIRLS you have too keep it down i cant sleep because you are like this.. BLA BLA BLA.. i´m just gonna close the door so i can get a little sleep .. þá sagði ég .. hey if you close the door we are not going to get in again because we dont have a key og hún bara .. okei bæ eða eitthvað.. alveg brjáluð! Það sauð á okkur og við bara héldum áfram að drekka og reyndum að hafa eins lágt og mögulegt var..

Geeeeðveikir hattar sem við keyptum okkur, komast sko 2 bjórar!

Ég með hattinn!

Svo fórum við á djammið á White lounge auðvitað, hittum þar einhverja gamla breta sem voru geðveikt fyndnir og eitthvað..

Ég og einn af bretunum! heheh..

Tinna með tvo í takinu!;D
tókum svo leigubíl heim, en á leiðinni tókst Tinnu að draga einhvern gaur með okkur í leigubílinn og þau hnakkrifust alla leiðina heim meðan ég spreytti mig í spænskunni við leigubílsstjórann. Svo var gaurinn farinn að þukla á Tinnu og leigubílstjórinn á mér og okkur var ekkert farið að lítast á blikuna en héldum samt áfram.. Gaurinn stal svo 10 evrum af Tinnu og sagðist þurfa það til að komast aftur heim í leigubíl.. blabla what ever.. Svo þegar við vorum að labba inn þá fórum við fyrst inn um hliðið sem þarf btw að nota lykil til að opna og vorum að fara að opna hurðina þegar gaurinn grípur  í rassinn á mér og ég fékk bara sjokk og horfði furðulostinn á hann og spurði svo Tinnu hvort hún ætlaði í alvuru að taka þetta ógeð með sér heim, hún var staðráðinn í því þangað til að hann byrjaði að káfa á brjóstinu á mér líka þá var henni nóg boðið! Við öskruðum á hann öllu íllu og heimtuðum 10 evrurnar hennar Tinnu og gerðum leit á honum sem barði lítinn árangur svo in the middle of nowhere hoppar gaurinn upp á grindverkið og ég í æðiskasti greip í hettuna hans og náði loðkraganum en gaurinn var svo hræddur að hann hoppaði bara yfir og SPRETTI í burtu.. hahahahaha!! Tinna var ekki búin að fá nóg og ætlaði að hlaupa á eftir honum en hann hljóp svo hratt að hún sá hann mörghundruð metrur frá og hætti við..! hahha!

Tinna í lok kvöldsins með loð gaursins.. hahahhaa !!

Svo fórum við inn og um leið og ég lokaði hurðinni sá ég hurðina hjá þýsku fjúka upp og hún steig útur myrkrinu einsog grýla sjálf og ég í sjokki hljóp inní stofu þar sem Tinna var þegar hlupinn inn í skáp þá hljóp ég inn í hinn skápinn og lokaði.. Svo heyrði ég hana koma þrammandi að skápnum og leit inn, sá mig ekki og leit svo inná klósett og var alveg að fara að labba í burtu þá sprakk ég úr hlátri og hún reif upp skápinn og sagði..

Christina: Woww you're drunk ! You know what now i woke up again because you are so noisy and talking so laud og bla bla bla!
Ég: Sorry we are just a little drunk and having fun
Christina: Yeah well you just have too keep your voises down so we can sleep og muldraði eitthvað.
Nú var mér nóg boðið og sagði!
Ég: Hey now you have too listen a little bit. Today is Saturday and its one week since we last partyed and you have too understand that we are here to have fun and not JUST to study! We really are trying to keep our voises down but this is just the best we can do! You know how loud this house is, if somebody closes the door everybody else can hear it! And when we are drinking and go to the WC we dont close the door and dont fluss every time just to try to be quiet! We never play loud music and this is our house to ! This is not just your and josges (japaninn) house !! And like this week we were just in our room watching dvd and not making any noise! You are always complaining about everything and Josge never says anything about us!
Christina: Yeah but he has complained a lot to me about you guys, hes just not that kind of guy who says something
Ég: Yeah i know but tonight we went too his door 2 times and asked him if everything was okey and if we were too laud but he said no no no okei okei! He is trying to understand us because he knows we are trying to keep it down .
Christina: Okei okei im sorry you sre right, today is saturday and you have the right to have fun, im just so tired of waking up in the middle of the night og bla bla im sorry !

HAHAHAHAHA bitch overboard djöfull vorum við ánægðar með árangurinn og hún hefur sko ekki sagt múkk síðan!!!

Annars erum við bara búnar að standa í veikindum eða aðalega Tinna. Hún er nánast búin að vera veik í 2 vikur núna með kvef, hita og tilheyrandi. Ég var bara ein í skólanum í nokkra daga og eitthvað..

Fórum svo út að borða þriðjudaginn fyrir viku á Wok Asia.. Geðveikt góður staður, fengum okkur núðlur og kjúkkling og eitthvað. Fórum svo downtown á pöbbarölt og svo á White lounge þar sem okkur leyst ekkert á blikuna lengur þegar við sáum barþjón selja kók við barborðið! fussumsvei! Fórum a annan bar og svo bara heim :D

Tinna með vodka redbull!

Hæ nikken! og redbull..!:D

Me and my homies...!


Daginn eftir löbbuðum við meðfram ströndinni og komum út á svona enda þar sem var geðveikt fallegt og það var svo heitt þennan dag.. fjúhh! Fengum okkur ís og röltum svo heim aftur ..

Tinna hjá "ánni" sem er ekkert vatn í.. hehe!

Voila!


Náttúrbarnið ég.. hehehe

Beautiful ströndin!

Tinna með ísana ..:D

risa pálmatré!

...

vaaa...

Tinna að finna hvort sjórinn væri kaldur..! brrr

Svo á föstudaginn þá vorum við búnar að panta okkur herbergi á Hosteli í Torremolinos, fyrir þá sem ekki vita er það "Costa del sol" Sem er meiri ferðamannastaður, miklu meira líf, djamm og shoooopping!! Ég fór einmitt þangað í fyrra ! þannig að ég þekki staðinn.
Á föstudeginum komum við á hostelið eitthvað um 8 leitið, hentum inn töskunum og tókum taxa beint á Timor Sol, hótelið sem ég var á í fyrra .. vooov flashback ! Gaman að koma þarna aftur ég var alveg að missa mig !:D Fórum út að borða á kínverskan og löbbuðum svo niðrá strönd.:D Fórum á geðveikan kokteil bar.. Los brothers og skelltum í okkur 2 kokteilum og röltum svo áfram.. Þegar drykkjan fór að hafa áhrif fórum við á 24 hour squere og djömmuðum af okkur rassgötin! Uppáhaldsstaðurinn minn, Mango's var samt lokaður.. búhú ..

búúú.. timor sol;(

Tinna fárveik að pína í sig kokteil! Tequila sunrise..!:D

nammi!

Pina Colada.. mmhh!

Hmm hvað á ég að fá mér? hehe..

Vodka redbull!

aha!


Svo á Laugardeginum vöknuðum við svooo veikar og þunnar að það var ógeð.. Fórum ekki út fyrr en seint, kíktum í búðir og fórum út að borða á ítalskan og svo á Viking bar, íslenska barinn, þar sem barþjóninn okkur til mikillar ánægju átti Ópal og Tópas! jibbííí.. Drukkum nokkur skot til að míkja hálsinn, því við vorum að deyja ! Fórum svo heim og horfðum á mynd og sofa..

Vöknuðum aðeins hressari á sunnudeginum og fórum að versla og löbbuðum niðrá strönd í bongóblíðu, settumst á ströndinni og nutum veðurblíðunnar og tókum svo lestina heim aftur.. :)

Á ströndinn..!:D

.. Brynja!

Verkefni mánudagsins biðu eftir okkur, sem voru stórþrif á húsinu og jólaskreytingar. Kellingarnar komu að þrífa og við hjálpuðum til. Vorum búnar að kaupa jólaseríur sem við hengdum upp út um allt hús!:D Eina inná baði, eina inní herbergi og eina úti á svölum plús einn sætan jólasvein í gluggan!:D hahaha.. Svo var bara jólatónlistinn sett í botn! Höldum að þýsku og japananum fynnist við soldið skrítnar.. hehe!

Voða fallegt núna á baðinu!

Oooog inní herbergi!

Á svölunum! hehe:D


Utan frá.. og sveinki sæti í glugganum! hehe..:D

Síðustu daga erum við búnar að standa í heljarinnar basli við að reyna að ná hárlengingunum hennar Tinnu úr, sem er EKKI búið að ganga eftir óskum!! En það tókst svo í gær, á endanum, eftir mjög mikla þolinmæði. Þá var hárið litað og hefur Tinna tekið gleði sína á ný!:D

Tinna fyrir utan skrifstofu skólans!

Í dag fengum við nóg af veikindum Tinnu, þar sem hún ætlar ekki að lagast! Fórum af stað í apótek og fengum loksins penselín! Splæstum í hárlit fyrir mig og er ég orðin líka svona rosa ljóshærð núna, sem þarf klárlega að venjast.. hehehe!:D Þið fáið myndir af nýja lúkkinu í næsta bloggi !:D

Vorum einmitt núna að klára að panta hótel í Torremolinos aftur!:D Þar sem að það er frí í skólanum fimmt. og föst. þá ætlum við að fara eftir skóla á morgun og vera fram á sunnudag. Gleeeeðifréttir! þegar við komum heim þá verður þýska farin.. wúúhúúú!!...

Segjum þetta gott ! Erum farnar að sakna allra geggjað mikið! Hlökkum til að koma heim og það er eins gott að það verði mikill snjór!!! hehehe..:D

Ykkar Bryns og Tinns!:D


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 13:36:17 / Brynja:)

Allt að smella saman á Spáni! ÚT MEÐ ÞÝSKU NÚNA STRAX!!

Hola mi amigos...!

Allt að gerast hérna í Malaga; Pedregalejo; Sebastian El Cano.. sísí..

Ætla bara að fara létt yfir helgina og meðfylgjandi!

Fórum að tala við gaurinn í skólanum um áframhaldið í skólanum og upplýsa okkur um hvort það væri möguleiki að leigja bíl hérna þar sem það fer að koma að því að við séum að verða verkefnalausar hérna! Erum búnar að þræða bæinn oft og mörgum sinnum, mollin og allt þetta dót:D Okkur var sagt að fara bara á netið á einhverja síðu og bóka bílinn og fara svo upp á flugvöll daginn eftir, sem við gerðum.. Bílinn átti að kosta um 9000 kall fyrir heila viku sem er ekki neitt fannst okkur :D

Allavega .. á föstudaginn fórum við bara í bæinn og versluðum grimmt! Fundum svo flott stígvel þig eigið eftir að deyja stelpur! Enduðum með að kaupa okkur alveg eins gooosshh svo flott ! Fullt að gerast í bænum, mikið líf og allsskonar artistar útum allt klæddir upp og fleira..

Aulinn Brynja í strætó!

Aulinn Tinna í strætó!

Brynja á MC'D!

Einn listamaðurinn sem var  geðveikt fyndinn!:D

Leiddi Tinnu..

Jólatréð sett upp :D

El Centro!

Stelpa sem var í geðveikum búning!:D

Hún gaf Tinnu kúlu því við gáfum henni péning!

Einhver plast kall sem vildi ekki leyfa okkur að taka mynd því við gáfum honum ekki pening..

Ætluðum bara að vera rólegar um kvöldið því við þurftum að vakna snemma á laug. morgun til að sækja bílinn.. Vorum næstum farnar á djammið en hættum við á síðustu stundu og fórum snemma að sofa..

Malaga !

The great great boots!!!!!!

Mwuuahhh!

Vöknuðum 10 um morguninn fórum í sturtu og gerðum okkur geðveikt sætar og tókum svo taxa útá flugvöll sem kostaði btw. 2000 kall! Leituðum útum allt af skrifstofunni og fundum hana loksins.. Frekar mjög mikil tík sem afgreiddi okkur og bað um ökuskírteini, visa kort og passa.. NEEIII okkur var sagt að við þyrftum ekki passa og voru passarnir okkar læstir inní security box á skrifstofunni í skólanum og hefðum ekki getað fengið þá fyrr en á mánudeginum.. Við reyndum allt til að fá gelluna til að gefa okkur séns og fá að koma með passann á mánudeginu en nei .. orð hennar voru : NO PASSPORT, NO CAR!! vá hvað það sauð á okkur og ég hélt að Tinna ætlaði að hjóla í gelluna .. shit ! Fórum á allar aðrar bílaleigur á svæðinu.. nei engin bíll laus ! AAARG ! Fýluferð ársins.. Þurftum að taka taxa aftur heim sem var þá komin 4000 kall útum gluggan þennan dag, mjööööööög gaman!

Í sárum okkar héldum við leið okkar á burger king og átum fyrir nokkrar evrur til viðbótar og fórum svo heim á netið að leita af bílaleigu sem gæti leigt okkur bíl.. Erum ennþá að bíða eftir grænu ljósi og þá verður haldið aftur út á flugvöll að reyna aftur..

Vorum búnar að ákveða að vera edrú um helgina þegar við áttum að fá bílinn en það var ekki í boði lengur þannig að við lögðum okkur í nokkra tíma, borðuðum og létum drykkjuna hefjast !

Vorum mjög lengi að og það hófst í þetta skipti að komast í bæinn sem var mjög gaman.. Heiti svíinn virtist veita Tinnu mjög mikla athygli og var að reyna að koma henni saman með vini sínum sem var ekki mikið augnakonfekt ef ég segi alveg einsog er.. Kvöldið var mjög fljótt að líða og endaði frekar skrautlega! Lets just say að við fórum ekki einar heim, þó bara einn amigo sem slósst í för! Ég myndi líka segja að herbergisfélagar okkar hafi mjög líklega ekki fengið allan þann svefn sem þau höfðu óskað sér.. :/ obbobbobb!!

WE

Brynja y Tinna!

Tinna drunkzzz..

Brynja í leigubílnum á leiðinni í bæinn.. WHA

Mr. HOT SWEDEN

Já takk ! bæði sko

Einn af barþjónun

Líka barþjónn

Tinna og nöllinn

sætiiii





Mjööög slæm þynnka á Sunnudaginn, við fórum varla út úr herbergi sökum mikilla apaláta um nóttina.:$

MJÖÖÖÖG ánægjulegt að segja frá því "vinkona" okkar frá Þýskalandi, þessi ferlega skemmtilega, tók sig til og bankaði uppá hjá okkur um kvöldið að leita sér að félagsskap..

Hún (Christina):  "bank bank"
Við (mjög hræddar um að nú væri komið að "the talk" um lætin miklu): Hvísluðum shiit hvað eigum við að gera :S Tinna fór til dyra..
Tinna: Hey whats up
Christina: Hey i was just wondering if u guys were watching a movie ?
Tinna (mjög hissa): öhm no we are watching the O.C.
Christina: okei is that a movie?
Tinna: no its a television show.
Christina: ohh okei..... Never mind..... see you guys.
Tinna: okei BÆÆÆÆÆ!

Hahahahahhaha! Við áttum erfitt með að tjá okkur um þetta, svo hissa vorum við.. En ég meina við hverju býst hún? Að hún geti hagað sér einsog algjör tussa og svo búist við því að við tökum við henni með opnum örmum! Við héldum nú ekki!
Það er semsagt mjög mikill pirringur í gangi á heimilinu, þar sem að það er ekki hægt að tala við þessa stelpu! Kvart og kvein er það sem einkennir hana og ég nenni ekki að fara nánar útí þetta! Fyrir utan eitt!


Brynja, Þýska pjallan, Tjing og Tjong hehehe... !

Áður en hún kom var allt frekar skítugt sem við kennum grikkjanum að mestu leyti um en það vorum samt við líka smá.. En síðan að fröken princess kom þá erum við búnar að vera geðviekt duglegar að halda húsinu hreinu! Vöskum alltaf upp eftir okkur, þetta sáralitla sem við notum og þrífum vanalega og svona.. En í gær komum við heim eftir að við vorum að versla og borðuðum og eitthvað og fórum svo bara upp að horfa á dvd.. Ég sver það eldhúsið var ekki svo slæmt að það hefði þurft að kvarta en nei.. ég kom niður seinna um kvöldið og var þá svona rosalega skemmtilegur miði á borðinu.. sem leit svona út..


"Girls, Please clean up after you! Thanks!"

JESÚS ég hljóp upp og sýndi tinnu og við vorum næstum búnar að missa okkur úr reiði! HVAÐ ER AÐ MANNESKJUNNI!!  Við erum oft á síðustu viku búnar að vaska upp núðlu leifarnar þeirra og pottar og pönnur útum allt eldhús sem þau hafa ekki gengið frá eftir sig og þetta var kannski í annað skiptið sem þau hafa komið að eldhúsinu svona eftir okkur !!! Við vorum brjálaðar!

For the record !!!! Akkurat þennan sama dag, um morguninn þegar ég fór niður áður en skólinn byrjaði og ætlaði að fá mér að borða þá var allt ógeðslegt og ég þurfti actually að þrífa áður en ég gat sest niður og borðað! Ekki var það eftir okkur HA!!

Við reyndum að nota ráðin ykkar stelpur og reyna að draga hana á djammið en það gengur ekkert ! hún haggast ekki !!
Nóg um tíkina..:^)

Skólinn!: Byrjuðum semsagt upp á nýtt í A námskeiði í gær og þetta er allt annað líf skal ég ykkur segja ! Við erum með frábæra kennara og önnur þeirra er hún sem var með okkur fyrstu vikuna.. jibbíjei! Við erum sko proffarnir núna! Enda komin tími til !:D Gaman gaman í skólanum og geðveikt hressir krakkar með okkur í tímum Muy Bueno!:D

Allt gengur vel og fórum við stöllur í mollið í gær og splæstum á nokkrar seríur! O.C. þriðju seríu, Prison Break og Desp. Housw. ! Jibbí jei! Verðum að hafa eitthvað að gera þegar djammið er í dvala og við erum enn að bíða eftir svörum að fá bílaleigubíl:)


Núna er talvan að verða batteríslaus þannig að þetta verður ekki lengra í bili! Takk fyrir að lesa og munið að commenta það er svo gaman !:D

Ykkar Brynja og Tinna in the Spain!:D


» 11 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 18:09:27 / Brynja:)

Viva la Spania!

Góða kveldið góðir hálsar!

Ég þori ekki annað en að blogga fljótt aftur eftir ítrekaðar hótanir um líflát.. segi svona!

Kalla mig góða að rífa mig uppúr þynkunni klæða mig, fara út til þess að blogga..

Allavega.. síðan síðast..

Fórum að versla á mánudaginn, við erum búnar að koma upp smá rútínu sem er þannig að við förum á nokkra daga fresti niðrí bæ í risa Supermarcado og gerum stór-kaup og tökum leigubíl heim, enda ekki möguleiki að fara með 10 poka í strætó! Förum svo í minni supermarcado til þess að versla áfengið, þar sem það virðist ekki vera jafn auðvelt og maður heldur að finna breezer og smirnoff ice hérna! Eina búðin sem við höfum fundið hingað til sem selur það! Förum þangað og tæmum úr hillunum reglulega!

Vááá hvað við versluðum mikið karfan var svo full að það hefði ekki getað komist meira ofaní hana.. Enda vorum við búnar að versla annað áður en við fórum í búðina. 3 skópör og eitthvað meira!

Tinna og karfan!

Og svo Brynja!

Pöntuðum okkur tíma í neglur daginn eftir og þar talaði engin ensku frekar en vanalega og við áttum mjög erfitt með að segja þeim hvað við vildum! En það hafðist á endanum! Vorum ágætlega sáttar með þetta ! Nema það að Tinna var með einhvern nema sem var 2 tíma að setja á hana og gleymdi í þokkabót að setja naglalakk á 2 putta.. hahha!:D


Við að borða áður en við fórum í neglur!

Erum ekki búnar að standa okkur alveg eins og við ætluðum að mæta í skólann eftir að við byrjðum með hópnum en ein spurning hvað er málið með alla þessa hollendinga hérna? Við erum 8 í tímum og 5 erum frá hollandi, gömul hjón sem eru á sextugsaldri sem geta ekki neitt, við vorum alveg orðnar vel pirraðar á þeim þar sem að hollendingar geta ekki sagt R þau segja bara GGRR einsog danir! Greyið kennararnir voru alveg að missa þolinmæðina og sérstaklega á kallinum! Svo eru með okkur 2 stelpur sem er líka frá höllandi, virðast mjög fínar og eru mjög nálægt því að ná errunum! Einn hollendingur í viðbót sem er svona 22 ára vatnsgreiddur gaur alltaf í skirtum og þvílíkt upp dressaður sem er alveg að skíta á sig í spænsku! Þegar hann talar þá loka allir eyrunum þar á meðal kennarinn sem nennir ekki einusinni að leiðrétta hann .. hahaha! Einn strákur í viðbót sem virðist fínn og lærir greinilega heima þar sem hann er eini sem getur eitthvað að viti í tímunum, höldum að hann sé þýskur en það er ekki enn komið á hreint!:)

Kennararnir sem eru með okkur núna kunna minna í ensku heldur en við í spænsku sem kemur sér mjög ílla þar sem að ein þeirra vissi ekki einusinni hvernig maður ætti að segja fiskur á ensku!! Við erum ekki að ná baun í bala og söknum gömlu kennarana okkar mjög! Erum að spá í að reyna að fá meiri einkakennslu eða byrja uppá nýtt á námskeiðinu því það þýðir ekkert fyrir okkur að hanga í þessum tímum þegar við gerum ekkert nema fletta upp hverju einasta orði sem kennarinn skrifar eða talar, því þær geta ekki þýtt neitt yfir á ensku.. Búhú..

Nóg um það! Við vorum búnar að vera geðveikt duglegar alla vikuna og ekkert búnar að djamma því það var sko ladys night á the White lounge í gærkvöldið! Markmið kvöldsins var heiti svíinn heim sem gekk ekki vel þar sem að við misstum okkur í drykkjuspili og höfðum ekki rænu á að koma okkur niðrí bæ fyrr en það var orðið of seint.. hahahah! Já hljómar spennandi !:D

Þynnka og át í hámarki í dag..

Tinna mjög glöð með lífið.. Einhverjar svaka flottar byggingar í bakgrunn sem sjást ekki vel!


Svo loksins fyndna sagan sem ég er búin að bíða eftir að getað sagt frá ! Vinur okkar gamli grikkinn sem við sögðum ykkur frá síðast var alveg að gera okkur geðviekar í vikunni! Elti okkur út að borða og gerði ekkert nema pirra okkur alla daga fékk að finna fyrir því.. muhahaha!:klikk:

Tinna og grikkinn eitt kvöldið sem hann ellti okkur!

Við !

Á laugardaginn síðasta þegar við stöllur komum heim af djamminu sáum við opna hurð inn til grikkjans og hann lá þar á maganum, í nærbuxunum afar kynþokkafullur, steindauður eftir drykkjuspilið okkar þar sem við svindluðum endalaust og fylltum hann svo mikið að hann var farin að káfa og ákveða giftingu hans og Tinnu í framtíðinni og heita nótt með mér og honum EWWW!! Allavega.. við læddumst inn til hans og byrjuðum að pína hann, kítla og klípa hann og þar sem hann sýndi engin viðbrögð hellti Tinna kóki á tærnar á honum og rasskellti hann svo fast að við báðar fundum fyrir sársauka hans.. HAHAHAHA! Enduðum svo með að henda kókdósinni inn til hans sem lennti á lærinu á honum og svo á gólfið og kók útum allt! Þetta hljómar eflaust mjög brútal en við vorum nær dauða en lífi við hlógum svo mikið af eigin húmor.. hahaha! Morguninn eftir...

Ég staulaðist fram úr og fór niðrí eldhús þar sem grikkinn var.. Sprakk úr hlátri þegar ég gekk framhjá herberginu hans þar sem gólfið var þakið kóki!

Ég: Hey where you drinking coke or something before you went too sleep its all over the floor in your room? (vá hvað ég átti bágt með að deyja ekki úr hlátri)
Hann: Ohh is it coke!? And no it was you and Tinna, you were in my room last night when i was sleeping putting coke on the floor and something!!
Ég: noo it wasn't us we were not in your room!
Hann: Yes i remember you where in my room laughing and talking and then í remember someone hitting me very hard on my ass so painfull, my ass is still red and hurting!
Ég sprakk úr hlátri og reyndi ennþá að neita fyrir þetta en gat ekki komið upp orði og hljóp upp aftur..

Veit ekki hvort þetta sé fyndið að lesa en við erum ekki enn hættar að hlægja! Þetta er ekki búið..

Kvöldið eftir var aftur opin hurðin inn til hans og við stóðum og henntum hlaupi í hann í dágóða stund og hlupum svo inn á herbergi og læstum og ég var að horfa gegnum skráargatið á hurðinni og hann kom brjálaður út og vissi ekkert hvað hefði gengið á meðan við Tinna vorum í kasti hinum megin við hurðina..

Svo kom vinur hans aftur sem skrapp til Marokkó í nokkra daga að skoða sig um .. Mjög blautur maður og drapst hann í sófanum niðri og við tókum vodkann hans og settum vatn í flöskuna í staðinn sem var mjög gaman þegar grikkinn fékk sér svo vodka kvöldið eftir.. hahaha!

Tannkrem og annar viðbjóður á hurðarhúninn og fleira og fleira!

Hann var ekki sáttur: I'M 40 YEARS OLD AND I DONT NEED THIS SHIT! YOU ARE FUCKED UP!!

Þangað til að hann loksins fékk nóg og fór í gærmorgun okkur til mikillar ánægju!
Seinnipartinn fréttum við að það væri að koma þýsk stelpa í herbergið hans í staðinn og vorum við mjög spenntar og sáum hana fyrir okkur slást í hópinn og djamma einsog hún fengi borgað fyrir það líkt og við.. Eeen NEI..
Hún kom loksins og er bara búin að vera okkur til ama! Virtist mjög fín þangað til að hún byrjaði að röfla yfir því hvað húsið væri skítugt og blablabla. Sem btw. var mest megnis eftir grikkjann! Svo röflaði hún yfir því hvað við tækjum mikið pláss í skápunum í eldhúsinu sem er reyndar alveg satt en það er samt nóg af skápum eftir fyrir hana! Svo buðum við henni með okkur á djammið, hún afþakkaði það og kvartaði svo yfir því seinna um kvöldið að við værum með læti! Við vorum búnar að vera geðveikt stillar allt kvöldið og pössuðum okkur að hafa engin læti til þess að hún myndi ekki vakna.. PFFF...
Svo toppaði hún þetta allt í dag þegar hún tók niður fötin okkar af þvottagrindinni sem sum voru ekki þurr ennþá, eignaði sér hana og fór með hana niður! That bitch!

Hún verður hérna næstu 4 vikurnar sem við erum ekki beint spenntar yfir!

Annars er bara tíminn fljótur að líða og á morgun eru 4 vikur þangað til að við förum til London..

Bloggum eftir helgi og segjum ykkur frá djamminu! Það á sko að taka vel á því um helgina skal ég ykkur segja!

Ströndin eitt kvöldið!

ALLIR það er skylda að commenta!! Gaman að sjá hvað þið hafið að segja !:D:D
 
Þangað til næst.. Blesssó!!


Brynja Sif og Tinna Ýr!


» 13 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 14:28:25 / Brynja:)

Á Spáni er gott að djamma og djúsa diskótekunum á HEY!! VIKA 1!:D

Hola amigos!

Loksins get ég gefið mér tíma í blog.. Þannig er að við náum ekki netinu inní hús þannig að ég þarf að fara fyrir utan skólann til að fá net.. mjööög spes:D Allavega ! Það er búið að vera svo gaman hjá okkur! Vikan í hnotskurn...:

Fórum af stað á laugardagsmorguninn ooojjjj hvað við vorum þunnar eftir partýið á Blástein.. Sváfum allan tímann í flugvélinni og lenntum í London 15:00 .. Vorum á flugvellinum geðveikt lengi að borða og versla einsog crazy og svona.. Tókum svo lestina til London centrum og gengum um götur London í nokkra tíma og vissum ekkert hvað við áttum að gera af okkur! Enduðum með að leigja okkur herbergi rétt hjá flugvellinum sem við áttum að fljúga frá og vorum þar um kvöldið og nóttina.. Vöknuðum svo 3 um nóttina og tókum taxa útá völl!
Ég hress á Gatwick flugvelli..
Tinna hress á gatwick flugvelli!
Herbergið okkar í London..

Komum til Malaga hádegi á mánudaginn fyrir viku. Bjuggumst við að vera í einhveri crappy skítugri íbúð 10 mín fjarlægð frá skólanum með strætó eða eitthvað þannig en nei ! Við komum inná srifstofuna í skólanum og það virtust allir vita að við værum stelpurnar frá Íslandi og fannst það öllum mjög merkilegt! Ohh you are the girls from Iceland welcome to Malaga og blabla!:D Maðurinn á skrifstofunni fór og fann lykla af íbúðinni og við löbbuðum af stað með allt okkur drasl 10 skref og þá vorum við komin!:D hahaha ótrúlegt!
Takið eftir.. þetta er ekki íbúð þetta er risa stór hús á tvem hæðum sem við erum í!:D
Niðri er stór stofa með sjónvarpi og sófum og öllu, stórt eldhús með tvem ískápum og borði og fleira. Uppi eru svo 3 svefnherbergi og 1 baðherbergi.
Við erum með stærsta herbergið sem er með 2 rúmum og 4 fataskápum náttborðum og einu skrifborði. Riiisa svalir beint fyrir utan gluggan á herberginu okkar ... mjöög næs:D
Our house, in the middle of our street, our house!
Ég inní forstofu að læra.. að sjálfsögðu!
Tinna inní stofa að "læra"

Aftur..
Inní elshúsi að læra.. :O hvað er þetta á borðinu!!:O:O
..
Eldhúsið
Tinna á ganginum uppi

Herbergið okkar þegar við komum.. HREINT...



 

Við vorum ekki lengi að rústa herberginu!

WE

Ég sæt í tölvunni..
Tinna útá svölum beint fyrir utan gluggan okkar..!:D
Tekið af svölunum..


Ég, nýja húfan  og skólabókin okkar.

Svo eru það okkar elskulegu roomies sem er einn 23 ára japani sem er mjög skrítinn, hann er búin að vera hérna í 2 mánuði og á eftir að vera í 2 í viðbót.
Svo er það 40 ára gamall maður frá grikklandi sem er í þriðja herberginu. Mjög fínn maður en kannski aðeins of fínn.. Alltaf eitthvað að troða sér uppá okkur og reyna að finna einhverjar astæður til að koma inní herbergi og fleira:D

Tinna og grikkinn
Herbergisfélagarnir.. Frá vinstri.. fertugi grikkinn, japaninn og vinur grikkjans..!:D
Ég og Estelios!
Japaninn og vinurinn!
Við öll svo happy..! hahahhaha!!

Byrjuðum svo í skólanum á þriðjudaginn 09:30 stundvíslega með kennara sem er algjör gella og heitir Auxi. Hún var eitthvað að prufa okkur og sjá hversu mikla spænsku við kynnum sem var nákvæmlega ENGIN.. þannig að það fór semsagt þannig að við vorum í einkakennslu alla vikuna með Auxi og svo annari konu sem heitir Angeles. Geðveikt gaman í skólanum erum að læra svo mikið á hverjum degi og þær eru mega hressar kennararnir. Svo byrjum við á mánudaginn s.s á morgun með hinum krökkunum í tímum sem verður örugglega mun erfiðara..
Ég og Auxi kennarinn..
Tinna í chillinu í frímó..
Morgunmatur mmm..



Erum bara búnar að vera í chillinu í vikunni skoða okkur um, versla í matinn og fleira.. Ég tók mig til einn morguninn og gerði stórþrif á svölunum okkar sem btw. voru ógeð.. sópaði skúraði og þreyf! Náði í borð og stóla og erum við bókstaflega búnar að vera útá svölum síðan þá!. Fórum svo í mollið í gær og gerðum stórkaup eða Tinna aðalega !  hahaha tókum svo leigubíl heim og dóum næstumþví úr þreytu..!
Tinna in Malaga city..

Erum búnar að djamma annan hvern dag, fyrst á þriðjudaginn með gamla grikkjanum, vini hans sem er líka fertugur grikki og japananum. Fórum á The White Lounge sem er hip hop staður í gamla bænum, eingöngu hip hop og svíar sem eiga staðinn.. Geðveikt gaman! Kynntumst stelpu frá Malaga sem á heima í Mexikó og heitasta gaur sem ég hef á ævi minni litið augum á shiiii! Hann er barþjónn frá Svíþjóð og lítur svona út:

Say no more.. mhhmmm..!
Tinna og the hoooot stuuff!!
Tinna og vinkonan okkar:D

Fórum svo að djamma á fimmtudaginn þar sem að skólinn bauð í bjór á Tortuga bar sem er hérna rétt hjá. Nema það að við vorum svo seinar að við enduðum með að missa af þessu og fórum bara aftur á White lounge!:D Vorum svooo fullar að allt kvöldið er kind of blurry, enduðum með að draga tvo spánverja með okkur heim sem við stungum svo af fyrir rest og fórum einar heim klukkan 5.. AAAHHH skóli klukkan 9:30, vöknuðum 9:25 og hlupum útí skóla.. Vá hvað við vorum þunnar við titruðum og gátum ekki neitt sko! Þurftum að sleppa 2 síðustu tímunum vegna þynnku og fórum heim að sofa.. Lágum allan daginn einsog klessur að horfa á dvd..:$
Á leiðinni á djammið
Tin Tin
Afhverju? hvaða fólk er þetta.. hahaha!
Í gær var svo tekið djamm aftur, White lounge að sjálfsögðu.. mjög gaman. Tinna var svo full á leiðinni heim það var svo fyndið! Komum heim og átum allt sem við áttum og fórum svo að sofa:D
Kjéllingarnar

HUH
Tinna fulla þegar við komum heim.. heheh:D

Svo ég tali nú aðeins um veðrið .. Það er bara perfect sko! svona 15+ á nóttunni og svona 25+ á daginn.. alltaf sól og logn.. Við erum svona 5 mín að labba niðrá strönd, sem við erum þó ekki búnar að gera enn.. Got too say við erum ekkert búnar að vera að worka tanið þannig að ekki búast við því að við komum brúnar heim.. not at all!:D


Ég ætla að láta þetta gott heita í bili, enda ekkert smá langt blog! Bloggum brátt aftur!

Kveðjur fra Espania, Brynja Sif og Tinna Ýr!:D

» 18 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 15:15:17 / Brynja:)

10 dagar!!:D

Góðan daginn gott fólk!:)

JÁÁÁÁÁ það eru bara 10 dagar þangað til að ég og Tinna förum til Spánar.. OMG FLEHH GETEKKI BEEEEÐIÐ:)

Við erum  svona næstum búnar að ákveða að halda smá kveðjuteiti á Blástein Laugardaginn áður en við förum út s.s. Laug 3. Nóv. Búnar að senda nánustu sms og þetta er svona allt í vinnslu.. daddara:D Ætlum að borða fyrst hjá Tinnu og eitthvað voða kosý..:)

Talandi um kósý.. Vöknuðum í morgun kl. 10:30 áttum tíma í 50 mín heilnudd í Nordica-Spa... shiiiit... Fórum fyrst í pottinn geggjað næs fengum axlanudd.. Fórum svo inn og það var sko aldeilis hamast á mér allan timann í var næstum farin að grenja mjög oft!! Semsagt mjöög slæm eftir mikla vinnu! Nuddarinn var ekkert smá hissa hvað ég var stirð..:) Er viss um að ef ég mundi fara aftur þá væri það geggjað.. En þetta var frekar vont sko:D hahaha..:)

Annars bara brjálað að gera næstu daga .. úff! Klipping og strípur, plokkun, neglur og svo endalaust stúss.. Kaupa fullt af dóti og kaupa gjaldeyri og fleira og fleira.. Við vorum orðnar svo stressaðar að við þurftum að gera plan til að ná öllu sem við eigum eftir að gera :D hahaha..!

En við sjáumst í pool í kvöld stúlkur!:D

Katrín hvernig gengur annars með ferðasöguna.. haha:)

Brynja kveður;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 01:07:07 / avocadoz

haha fyndið:)

Body: The Month You Were Born
1 - I cuddled with
2 - Body: The Month You Were Born
1 - I cuddled with
2 - I needed
3 - I ran naked with
4 - i ran shirtless with
5 - I smoked with
6 - I beat
7 - I ate
8 - I killed
9 - I banged
10 - I robbed
11 - I stabbed
12 - i shot

Pick the day (number) you were born on

01 - a taco
02 - a dog
03 -a hottie
04 - A homo
05 - a rock star
06 - A toothbrush
07 - Paris Hilton
08 - a glass of milk
09 - a porn star
10 - a horse
11 - the trojan man
12 - a teletubby
13 - my boyfriend
14 - a drink
15 - you
16 - a pot head
17 - a bum
18 - a stripper
19 - a condom
20 - a crack head
21 - a homeless guy
22 - Barney the dinosaur
23 - the cookie monster
24 - a easter egg
25 -a bowl of cereal
26 - a golf ball
27 - a bag of weed
28 - a french fry
29 - your drug dealer
30 - a mop
31 - Ur grandma

Pick the color of shirt you are wearing

White - because that hoe stole my taco
Black - because I'm sexy like that
Pink - Because I'm good in bed
Red - because I have AMAZING boobs
brown- because I had to
Polka Dots - because I hate my life
Purple - because I'm gay
Gray - because I love marijuana
Other - because I have double D's
Green - because I love to snort cocaine.
Orange - because I smoke crack
Turquoise - because I have a noodle in my nose
blue - because I'm a pimp
Shirtless - because I've got abs
Maroon- because I didn't like the way they looked at me

Allir að commenta sitt:D  Mitt er:

I needed a drink because that hoe stole my taco:)

Kv. Brynja:D

» 11 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 13:27:07 / Brynja:)

bloggidíblogg...

Góðan dag!

Ákvað að skvetta inn nokkrum orðum þar sem engin annar virðist geta gert það:klikk:.. :)

43 dagar þangað til að við Tinna förum út.. Vá hvað tíminn líður hratt! En þó ekki nógu hratt.. Ég er búin að vera að mail-ast við eitthvað fólk úr skólanum og við erum orðnar svo spenntar sko shiii!!:D Look at thiiis...!!

  • Our school Malaga Option 1 has the attraction of being located just 200-250 metres from the long sandy beaches of Pedregalejo.
  • At our school in students are provided, on the first Tuesday of their course, with a guided tour of the historical centre of the city of Malaga, accompanied by a tutor.
  • From Monday-Friday there is one organised activity each afternoon, including a 'Tapas Tour' in the old town of Malaga, a welcome drink at the beach, a guided walk up into the hills around Malaga, beach sports, Spanish cookery lessons (tortilla, paella, etc) and Spanish film evenings in the school. These activities are free of charge.
  • There are also optional full-day excursions each weekend. We typically take our students to Granada, Seville, Cordoba, the Sierra Nevada Mountains and to Cadiz.
  • Depending on demand, our school also organises a weekend excursion to Morocco once a month.We leave Malaga on Friday afternoon and return late on Sunday evening. Transport, guides, accommodation and food are all included. The excursion costs around 150 euros.
  • Students at our school, have the option of staying in a shared student apartment. This means having a single or shared room in a fully equipped self-catering apartment, sharing the kitchen, living room and bathroom with the other occupants of the apartment. The other people in the apartment will also be students attending courses at our school, from a wide range of nationalities, all studying Spanish. All the apartments have televisions and washing machines.
  • All the self-catering shared student apartments are within easy walking distance of both the school and the beach. These apartments are a very popular option with our students from all over the world.

Wúhú!!!:D Hérna er svo bréf sem ég fékk frá þeim..

Dear Brynja and Tinna

Our
Malaga Option 1 school uses three beautiful Mediterranean villas, situated side by side on a little pedestrianised street bordered by cascading colourful flowers and just 200 metres from long sandy beaches. The school has 25 classrooms, a computer room and roof-top snack bar.
It is no problem for you to stay together in a twin room. We arrange for friends to stay together, so it is very straightforward to arrange this.
Lessons at our school in Malaga start at 9:30 am
The remaining balance is then due 8 weeks before you start your course, although it would be ok for you to pay it 5 weeks beforehand. We need
to receive full payment before you start your course.
I hope that I have answered your questions. If you require any further information, please do not hesitate to contact us.

Kind regards, Miriam

Svo er eitt sem ég átti eftir að segja kæra fólk! Ef allt gengur eftir óskum þá verður þetta þannig að skólinn er búin á föstudegi 14 des, við fljúgum til London sama dag og verðum á gistiheimili þar þangað til á Mánudag.. María mín frá Danmörku ætlar að hitta okkur á föstudeginum og vera með okkur um helgina í London! En getiði nú hverjar eru að byrja tónleikaferðalagið sitt í London laugardaginn 15 des.. daddaraaaa......

THATS RIGHT! SPICE GIRLS!!! sem líta svona út í dag..

hahahah.. aww þetta á eftir að verða svo awesome!!:D Hversu langþráður draumur að fara á Spice girls tónleika.. haha:D

Ekkert nema þetta framundan.. jú það er staffadjamm næstu helgi! Förum í keilu svo borðum við og svo er auðvitað frítt áfengi langt fram á nótt! :D
Svo verðum við að gera eitthvað skemmtilegt saman áður en við Tinna förum út.. matarboð, bústað, djamm eitthvað;D

Ég þarf víst að þrífa bílinn minn hann er algjör vibbi! Hef aldrei séð hann svona skítugan.. úakk!8|

Over and Out luuuv:*;);)

Brynjan..!:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 15:18:29 / Brynja:)

exotískt kaffi frá ókunnum löndum af innlifun sötra í kór!..

Komdu ekki við mig, já komdu ekki nær, krumlunum haltu til hlés.

Snilldar lag Ína -  Lopahyskið

Frekar léleg blog frammistaða hérna í gangi.. pfff..:)

Hvað er að frétta !:D

Skólarnir byrjaðir og alvaran tekin við.. Sumarið brátt á enda..:(

Halla... Hún er byrjuð í Fá og vinnur með skólanum á Sólbaðsstofunni Smart og líkar vel!

Katrín.. Hún er að vinna í Nóatúni og Skara, ætlar í kvöldskóla að næla sér í nokkrar einingar.

Ég er bara vinnandi myrkrana á milli á Eiken Teiken.. sem er fínt:) Er búin að vera hálf dauf í dálkinn og ennþá að svekkja mig yfir því að Turkey sé búið og þjóðhátíð:(

En það er sko nog framundan!:D:D Eftir 2 mánuði og 3 daga eða nákvæmlega 9 vikur í dag þá verðum ég og Tinna elskan staddar í Malaga á Spáni á fyrsta skóladegi að læra spænsku!!:D
Geeet ekki beðið:D förum 5 Nóv og verðum í 6 vikur í afslöppun:D Komum svo heim eitthvað um 16 des. Þetta verður best:)

Ég er svo að fara í Fá fjarnám eftir áramót.. Florida í 3 vikur um páskana í mars..

Nóg um það!!:D Helgin var líka svona rosa skemmtileg:D

Var að vinna á föstud..
Svo var tekið djamm á laugardaginn. Vorum hjá Höllunni, Halla, Brynja, Helga, Laufey og Einar. Fórum snemma í bæinn eða um hálf 1 og fórum á Vegamót. Vorum þar í einhvern tíma og héldum svo á Sólon.
Hittum fullt af fólki.. Svo stakk Laufey af hahah:D Hittum Helen og Hönnu og svo týndumst við Halla?. Ég og Helen vorum í ruglinu til 7 um morguninn. Warning! Helen er stórhættulegur drykkjumaður! Hún fyllti mig svo íllilega að ég vaknaði 3 á Sunnudeginum sko án djóks ég var svo full ennþá!
Átti að vinna kl. 6 en það var engan vegin að fara að gerast! Fékk að mæta 10 og var einsog draugur restina af kvöldinu.. úff!:) Gef þessu djammi samt alveg 8.5 mjög gaman!:D


Ég hress..:D
Halla Helga og Laufey
Wrawr!
Sólon
Ég og Berglind mín sveittar á danssgólfinu:)
Vinir mínir frá Útlöndum...:S
Helen! við hvern ertu að taaalaaa... hehehe:D

En ég verð víst að drífa mig í vinnuna:D

Stelpur!! Ég vill sjá blog frá ykkur ekki seinna en á Föstudag!:D

Í lokinn, nokkur slagorð frá Tyrklandi
  • Too driven to drunk
  • All inn my friend!
  • Nanananana heyíje!:D
  • GAMAN JÁ LEIÐINLEGT NEI
  • Tomorrow says the late
  • gúrigúrígúrí úa úa
  • upp kaðlinn, niður kaðlinn, piparkvörnin, piparkvörnin.. U know the rest.. haha:D



    Man ekki meira í augnablikinu.. Myndir frá laugardeginum komnar í aðalvalmynd..

    Takk fyrir mig!

    Yfir og út.. Brynja Sif!:D

» 10 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 14:27:15 / Brynja:)

Mig dreymir um þig þjóðhátíð!!

Já góðir hálsar myndirnar eru komnar úr eyjum, fáar en góðar.. Einnota myndavélin mín drukknaði í áfengi, sumar myndir því frekar lélegar;D

Njótið vel!;*

Dalurinn, 10.000 manns í brekkunni 10 mín í Bubba:):**

Katrín og ég:D

Burns, burns, burns the ring of fire...
ooo:')

meira oooo:')

Hædí og Kædí:D



Get ekki beðið í ár AFTUR:(... Hlööökkk... :):)
Takk fyrir mig, Brynja Sif kveður ei með bros á vör í þetta sinn:(

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 19:08:11 / avocadoz

We are home..:(

Já góðan dag gott fólk..! Einog flestir vita erum við stöllur komnar heim og alvaran tekin við.. því miður.. En þessi ferð toppaði allt! Endalaust gaman..Ætla aðeins að renna yfir þetta í stórum dráttum!:D

Það var lagt í hann 13 júlí..


-með bros á vör



Cruið -Brynja

THE SUNNY TIMES.........


Sleikt sólina

 

 

Bæjarferðin, skoðuðum Marmaris!



DJAAAAMMING TIMES...

Öll djömmin...!!! Hvert eitt og einasta kvöld!

 

AHAHAHA besta momentið!




Hver var hér að verki!?

Areena; stærsti skemmtistaður í Marmaris



Síðasta djammið:(:(:(:(

GOOOOD TIMES!

SLEEPY TIMES...


Vörðurinn á Hótelinu... GÓÐUR

Tinna og hennar blautu draumar... guurrr!


Þunnar nokkuð?

zzzzzzzz....

FÓLKIÐ SEM Á VEGI OKKAR VAR, LUUUV:*


Fyrst og fremst, besti spilamaður sögunnar.. Úa Úa gúlligúllí kiss kiss kiss.. snilldar gaur!!

Hótelstjórinn, gella sem gerði ekki rassgat allan daginn og labbaði einsog hún svifi á skýi, ekki spes skemmtileg..:D

Litli gaurinn á Bar-X

Glasabörnin

Selpurnar 14.. luuv á línuna;)

Hótel-staffið.. Meirihlutinn mjög elskuleg;);*

Mojito gaurarnir..:D

Julie sem vann á Hótelinu, hataði okkur:D

Matta;*

María og Palli;)

Elsku Ýsa.. "Best barman in the world"

Kai og fjösk. hans;)

Litla dúllan!!

Olsen, sem planaði brúðkaup hans og Kötu, wery nice couple!

Krullan hennar Höllu.

Bretarnir..

Hver var þetta aftur...?????


Raggi og Einar ;)

Súrakind

Papi chulo!

Litli djöfullinn

Jack Sparrow og félagar, vinsælir allstaðar

Elskulegu barþjónarnir á BAR X.. bara skemmtilegir;)

Hussain og Ozzy.. Kissusjúkir?

DONKEY DONKEY!!!

Villibarnið!


Özgur?


Síðast en ekki síst.. Sætasti gaurinn á pleisinu, WonderBoy



Takk allir fyrir frábæra ferð sem vonandi verður endurtekin á næsta ári!;)

MYNIRNAR ERU KOMNAR Í 4 HLUTUM Í AÐALVALMYND:)



» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20
TYRKLAND!!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1686 dögum